YFIRMAÐUR EÐA LEIÐTOGI?

MARKMIÐ:

Að þátttakendur verði meðvitaðir um mismunandi stjórnunarstíla og hverju leiðtogahugsun í starfi getur skilað. „Leiðtogafærni er getan til að örva og hvetja aðra í átt að sameiginlegu markmiði.“

MEÐAL ÞESS SEM FARIÐ VERÐUR YFIR:

  • Hvernig tengjast samvinna og árangur mismunandi stjórnunarstílum?
  • Hvernig færðu fólk til að vinna með þér?
  • Skiptir máli hvernig hlutirnir eru sagðir?
  • Hvernig færðu neikvæða starfsmenn á þitt band?
  • Hvernig stjórnun skilar mestum og bestum árangri í formi aukinna afkasta og skilvirkni?
  • Hvaða þekking skiptir stjórnendur mestu máli?
  • Hvernig á að stjórna fólki? Er hægt að stjórna fólki?
  • Hvernig færð þú fólk á þitt band svo það hafi virkilegan áhuga á að vinna fyrir þig?

HELSTI ÁVINNINGUR AF NÁMSKEIÐINU:

  • Öflugri stjórnendur
  • Innsýn í eigin stjórnunarstíl
  • Þekkja helstu leiðtogakenningarnar
  • Skilningur á muninum á stjórnanda og leiðtoga
  • Læra helstu aðferðir leiðtoga í stjórnun

LENGD:

Fer eftir efnistökum en að lágmarki ein klukkustund með umræðum í lokin.

FYRIR HVERJA:

Alla þá sem hafa með mannaforráð að gera, svo sem yfirmenn og stjórnendur fyrirtækja, ráðuneyta eða stofnana. Hentar líka mjög vel fyrir alla þjálfara íþróttafólks.