YFIRMAÐUR EÐA LEIÐTOGI?
MARKMIÐ:
Að þátttakendur verði meðvitaðir um mismunandi stjórnunarstíla og hverju leiðtogahugsun í starfi getur skilað. „Leiðtogafærni er getan til að örva og hvetja aðra í átt að sameiginlegu markmiði.“
MEÐAL ÞESS SEM FARIÐ VERÐUR YFIR:
- Hvernig tengjast samvinna og árangur mismunandi stjórnunarstílum?
- Hvernig færðu fólk til að vinna með þér?
- Skiptir máli hvernig hlutirnir eru sagðir?
- Hvernig færðu neikvæða starfsmenn á þitt band?
- Hvernig stjórnun skilar mestum og bestum árangri í formi aukinna afkasta og skilvirkni?
- Hvaða þekking skiptir stjórnendur mestu máli?
- Hvernig á að stjórna fólki? Er hægt að stjórna fólki?
- Hvernig færð þú fólk á þitt band svo það hafi virkilegan áhuga á að vinna fyrir þig?
HELSTI ÁVINNINGUR AF NÁMSKEIÐINU:
- Öflugri stjórnendur
- Innsýn í eigin stjórnunarstíl
- Þekkja helstu leiðtogakenningarnar
- Skilningur á muninum á stjórnanda og leiðtoga
- Læra helstu aðferðir leiðtoga í stjórnun
LENGD:
Fer eftir efnistökum en að lágmarki ein klukkustund með umræðum í lokin.
FYRIR HVERJA:
Alla þá sem hafa með mannaforráð að gera, svo sem yfirmenn og stjórnendur fyrirtækja, ráðuneyta eða stofnana. Hentar líka mjög vel fyrir alla þjálfara íþróttafólks.